Skinney
– Þinganes hf.
|
||
|
Útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækið Skinney – Þinganes hf. var stofnað í janúar 1999. Aðdragandinn var skammur. Í lok janúar það ár keyptu útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækið Skinney hf. og útgerðarfélagið Þinganes ehf. 58% hlut í útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækinu Borgey hf. á Höfn og í kjölfarið voru fyrirtækin þrjú sameinuð undir nafninu Skinney – Þinganes hf. Borgey
var elst þessara fyrirtækja og jafnframt elsta útgerðarfélagið á Höfn,
stofnað 11. apríl 1946 af Kaupfélagi Austur-Skaftfellinga og um 20
einstaklingum. Lengi vel gerði Borgey út einn vertíðarbát, Hvanney SF 51,
en frá árinu 1975 til 1984 hélt félagið úti tveimur vertíðarbátum,
Hvanney og Lyngey SF 61. Síðla árs 1984 var starfsemin aukin með kaupum á
299 rúmlesta skuttogara sem fékk nafnið Þórhallur Daníelsson SF 71, árið
1986 keypti útgerðarfélagið 104 rúmlesta trébát og gerði hann út undir
nafninu Hrísey SF 41 og á árunum 1987-1989 gerði félagið jafnframt út 201
rúmlesta stálskip, Akurey SF 31. Kaupfélagsstjórarnir
Ásgrímur Halldórsson (1953-1975) og Hermann Hansson (1975-1992) voru lengst
af framkvæmdastjórar Borgeyjar hf. Snemma
árs 1992 sameinaðist Borgey útgerðarfélaginu Samstöðu hf. á Höfn en það
gerði út 451 rúmlesta skuttogara, Stokksnes SF 89. Hið sameinaða félag bar
nafnið Borgey hf. og réð það í upphafi yfir 5224 tonnum í þorskígildum
talið. Starfsmenn voru 60-70. Nú var skammt stórra högga á milli. Hinn 1. júlí
1992 hætti kaupfélagið öllum rekstri tengdum sjávarútvegi en Borgey tók
við starfseminni og keypti húseignir og framleiðslutæki félagsins á sviði
fiskvinnslu. Skuttogarinn Þórhallur Daníelsson SF 71 var seldur. Rekstur Borgeyjar komst í þrot í árslok 1992 en með greiðslustöðvun, nauðasamningum og endurfjármögnun árið eftir var félaginu komið á réttan kjöl. Það varð þó að sjá á eftir skuttogaranum Stokksnesi og miklum bolfiskkvóta en þess í stað var lögð aukin áhersla á vinnslu loðnu og síldar og var fjárfest í dýrum framleiðslutækjum í því sambandi. Auk þess var nótaskipið Húnaröst RE 550 keypt og félagið varð stærsti hluthafinn í fiskimjölsverksmiðjunni Óslandi ehf. á Höfn. Þetta skilaði ekki tilætluðum árangri og brátt hallaði undan fæti á ný. Saga
hlutafélaganna Skinneyjar og Þinganess er öllu skemmri en Borgeyjar en þó
voru þau meðal elstu starfandi útgerðarfélaga á Höfn þegar þau sameinuðust
um kaupin á meirihlutanum í Borgey. Skinney var stofnuð í maí 1968 af Ásgrími
Halldórssyni kaupfélagsstjóra, Birgi Sigurðssyni skipstjóra og Ingólfi Ásgrímssyni
skipstjóra, syni Ásgríms. Sama ár keypti útgerðarfélagið 72 rúmlesta trébát
sem fékk nafnið Steinunn SF 10. Árið 1971 var báturinn seldur en í staðinn
var keyptur 90 rúmlesta stálbátur sem gefið var sama nafn. Í millitíðinni,
nánar tiltekið árið 1970, hafði félagið keypt 208 rúmlesta stálskip sem
fékk nafnið Skinney SF 20. Það var gert út á loðnu- og síldveiðar auk
netaveiða en minni bátarnir stunduðu einkum neta-, línu- og humarveiðar. Árið
1975 keypti hlutafélagið nýsmíðaðan 297 rúmlesta skuttogara frá Noregi
sem hlaut nafnið Skinney SF 20 en eldra skip með sama nafni gekk upp í
kaupin. Togarinn var seldur tveimur árum síðar en í staðinn var keyptur 105
rúmlesta bátur sem fékk nafnið Freyr SF 20. Árið 1986 bætti félagið við
sig þriðja bátnum, 172 rúmlestum, sem gefið var nafnið Skinney SF 30. Sumarið
1987 urðu þáttaskil í rekstrinum með kaupum á þrotabúi fiskvinnslunnar
Stemmu hf. Húsakosturinn var aukinn og upp frá þessu rak Skinney hf.
allumfangsmikla saltfiskverkun, humarfrystingu, síldarsöltun, síldar- og loðnufrystingu
og niðurlagningu á síld. Starfsmenn voru yfirleitt á bilinu 50-100. Í ársbyrjun
1998 keypti Skinney fyrirtækið Kambfell hf. á Reyðarfirði sem sérhæfir
sig í frystingu á bolfiskflökum. Auk þess átti Skinney 20% hlut í fiskimjölsverksmiðjunni
Óslandi ehf. Árið
1995 keypti Skinney nýlegt nótaskip frá Skotlandi og var því gefið nafnið
Jóna Eðvalds SF 20. Kom skipið í stað Freys SF 20 sem var seldur. Jóna Eðvalds
var fyrsta íslenska skipið sem búið var RSW-kælikerfi en með því var hægt
að geyma síldina ferska um borð í nokkra daga. Ingólfur
var skipstjóri á Steinunni og síðar á Jónu Eðvalds en Birgir var skipstjóri
á Frey og á skipunum sem báru nafnið Skinney. Ásgrímur Halldórsson var
framkvæmdastjóri Skinneyjar hf. til ársins 1993 en þá tók sonarsonur hans,
Aðalsteinn Ingólfsson, við starfinu. Þinganes
hf. var stofnað 20. maí 1972 af bræðrunum Gunnari og Ingvaldi Ásgeirssonum
og Sverri Guðnasyni mági þeirra. Um svipað leyti keypti félagið 74 rúmlesta
trébát sem fékk nafnið Þinganes SF 25. Árið 1984 var keyptur 125 rúmlesta
stálbátur, Þórir SF 77. Gerði félagið bátana út á bolfisk-, humar-, rækju-
og síldveiðar. Árið 1996 var keypt 199 rúmlesta stálskip í stað Þóris
sem var seldur. Nýja skipið fékk sama nafn og hið eldra. Árið 1998 keypti
félagið 10 rúmlesta trefjaplastbát, Hrapp SF 170. Gunnar var framkvæmdastjóri
útgerðarfélagsins og skipstjóri á Þinganesi en Ingvaldur hefur verið
skipstjóri á Þóri frá upphafi. Árið
1991 fékk Þinganes hf. afhent 162 rúmlesta togskip sem félagið hafði látið
smíða í Portúgal og kom það í stað trébátsins. Nýja skipið fékk
nafn þess eldra, Þinganes SF 25. Skipið hefur verið gert út á fiski- og
humarbotnvörpuveiðar. Eins
og áður segir sameinuðust Skinney og Þinganes um kaup á meirihluta í
Borgey hf. í janúar 1999. Formleg sameining varð 1. október sama ár og
sameinuðust fyrirtækin í kennitölu Borgeyjar en nýtt nafn varð Skinney –
Þinganes hf. Framkvæmdastjóri er Aðalsteinn Ingólfsson og starfandi stjórnarformaður
er Gunnar Ásgeirsson. Fyrstu
mánuðina eftir sameininguna var unnið að hagræðingu í rekstri, meðal
annars með því að sameina framsleiðslueiningar og einfalda stjórnkerfi
fyrirtækisins. Vorið 2000 var keypt 1094 brúttótonna nótaskip frá
Skotlandi í samvinnu við SR-mjöl hf. Fékk það nafnið Ásgrímur Halldórsson
SF 250. Skipið er búið fullkomnu kælikerfi og er gert út til veiða á
kolmuna, loðnu og síld í nót og troll. Sérstakt hlutafélag, Þingey ehf., var stofnað um rekstur Ásgríms Halldórssonar og skiptust eignarhlutirnir upphaflega jafnt á milli Skinneyjar – Þinganess og SR-mjöls en síðar eignaðist Síldarvinnslan hf. í Neskaupstað hlut SR-mjöls. Hinn 1. september 2001 tók Þingey fiskimjölsverksmiðjuna Ósland á Höfn á leigu en vorið 2002 keypti Skeggey ehf., sem er í eigu Þingeyjar, fiskimjölsverksmiðjuna og hefur starfrækt hana síðan. Skinney – Þinganes hefur lagt
áherslu á að auka kvóta fyrirtækisins og styrkja þannig rekstrargrundvöllinn.
Með þetta að markmiði keypti félagið útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækið
Arney ehf. í Sandgerði í byrjun árs 2001 og í upphafi árs 2002 var útgerðarfélagið
Sléttavík ehf. í Hafnarfirði keypt í sama tilgangi. Í lok sama árs gekk
Skinney – Þinganes svo frá kaupum á útgerðarfyrirtækjunum Eskey ehf. og
Hafdísi ehf. á Höfn. Árið 2003 keypti Skinney – Þinganes
nýtt skip í stað Jónu Eðvalds og var nýja skipinu gefið nafn þess eldra.
Hér er um að ræða 1221 brúttótonna fjölveiðiskip sem gert verður út á
kolmuna-, loðnu- og síldveiðar með troll og nót. Skinney
– Þinganes rekur saltfiskverkun árið um kring, humarfrystingu, loðnufrystingu
og síldarfrystingu, -söltun og -niðurlagningu. Við þessa starfsemi vinna
85-100 manns. Félagið á tíu fiskiskip með um 70 manna áhöfn alls og
er því heildarfjöldi starfsmanna yfirleitt á bilinu 180-200. Skipunum
tilheyrir um 10.500 tonna kvóti í þorskígildum talið, þar af er um 4000
tonn þorskur. Félagið fær úthlutað 20% humarkvótans, tæp 17% síldarkvótans
og 3% loðnukvótans. Arnþór Gunnarsson tók samanUppfært í nóvember 2003 |