1. sept 2008

Okkur vantar fólk

Skinney-Þinganes hf á Hornafirði rekur fjölbreytta fiskvinnslu, fiskimjölsverksmiðju og gerir út 7 báta. Hjá félaginu starfa um 200 manns. Í fiskvinnslunni er unninn saltfiskur, bolfiskur í frystingu/ferskt, humar, síld og loðna. Starfsfólk færist á milli deilda eftir vertíðum og vinnur því mjög fjölbreytt störf. Fiskvinnsla félagsins er mjög tæknivædd og er talsvert af eftirlitsstörfum þar, auk hefðbundinna fiskvinnslustarfa. Mest allt hráefni til vinnslunnar kemur af eigin skipum af kvóta félagsins. Okkur vantar fólk til liðs við okkur. Okkur vantar:

Rafvirkja

Lyftaramenn

Starfsmenn á vélaverkstæði

Baader menn

Starfsfólk í fiskvinnslu

Vaktformann í fiskimjölsverksmiðju

Mikil vinna og góðar tekjur. Um framtíðarstörf er að ræða. Auk þess vantar okkur vélstjóra- og stýrimannsmenntaða sjómenn. Upplýsingar í síma 470-8111.

Forsíða Fréttir Myndir Skipin Símanúmer Netföng Fyrirtækið

24/5 ´13 kl 08:00

Jóna Eðvalds er í heimahöfn.

Ásgrímur Halldórsson er í heimahöfn.

Þórir landaði í gær 83 körum af humri.

Þinganes er á veiðum um 35 - 40 sm norður af Rifstanga.

Steinunn er á veiðum vestur af Breiðafirði .

Hvanney er á veiðum, landaði í gær 43,5 tn.

Skinney er að landa 41 kari af humri, og þeir drengir fara í helgarfrí.

Ragnar er á veiðum, landaði í gær 6,7 tn.

Guðmundur Sig er á veiðum, og landaði í gær 4,4 tn.

.

 

VEFMYNDAVÉL