17. des. 2008

Útgerðarstjóri Skinneyjar-Þinganess

Um áramótin verða þær breytingar að Ásgeir Gunnarsson tekur til starfa sem útgerðarstjóri hjá fyrirtækinu. Ásgeir útskrifaðist úr Stýrimannaskólanum árið 1987 með 2. stig skipstjórnar. Starfaði hann sem stýrimaður í nokkur ár áður en hann hóf eigin trilluútgerð árið 1994. Hann var með eigin útgerð í 13 ár eða þar til í maí 2007. Í janúar 2007 hóf Ásgeir nám í Tækniskólanum og mun hann útskrifast sem útvegsfræðingur næsta vor. Ásgeir hefur jafnframt námi starfað sem aðstoðarframleiðslustjóri félagsins síðastliðið eina og hálfa árið. Hann tekur við daglegum rekstri útgerðarinnar af Gunnari Ásgeirssyni. Gunnar hefur haft umsjón með útgerðarþætti fyrirtækisins s.l. 8 ár ásamt því að vera starfandi stjórnarformaður.

Forsíða Fréttir Myndir Skipin Símanúmer Netföng Fyrirtækið

3/6 ´13 kl 08:00

Jóna Eðvalds er í heimahöfn.

Ásgrímur Halldórsson er í heimahöfn.

Þórir er í höfn.

Þinganes er í höfn á Sauðárkrók.

Steinunn er í höfn í Reykjvík.

Hvanney er í höfn .

Skinney er í höfn.

Ragnar er á veiðum frá Breiðdalsvík,

Guðmundur Sig er á veiðum frá Breiðdalsvík.

Óskum öllum sjómönnum og fjölskyldum þeirra ánægjulegs sjómannadags.

.

 

VEFMYNDAVÉL