15. jan. 2009

Þórður Jónsson verksmiðjustjóri

Þann 15. febrúar nk. tekur Þórður Jónsson við stjórn fiskimjölsverksmiðju félagsins af Ingva Sigurðssyni. Þórður starfaði hjá Síldarverksmiðjum Ríkisins (síðar SR Mjöl hf) frá 1986 til 2003, fyrst sem tæknistjóri og síðar sem framkvæmdastjóri. Áður hafði Þórður starfað við verksmiðjustjórn og tæknimál hjá Síldarverksmiðjum Ríkisins, Hraðfrystihúsi Eskifjarðar hf og Lýsi hf. Þórður vann áður við báta- og skipasmíðar, en hann lærði skipatæknifræði í Danmörku. Þórður hefur undanfarin ár starfað sem ráðgjafi við ýmis verkefni og m.a. aðstoðað við uppbyggingu og endurbætur á verksmiðju Skinneyjar-Þinganess. Ingvi Sigurðsson tók við stjórn verksmiðjunnar eftir að Skinney-Þinganes eignaðist hana að fullu haustið 2007 og réði sig þá til eins árs. Þá voru framundan miklar endurbætur á verksmiðjunni og aðstöðu allri. Hefur þar m.a. verið tekinn í notkun nýr löndunarbúnaður í nýju húsi, gömlu verksmiðjunni breytt í mjölhús og skipt um gufuþurrkara, auk ýmissa annarra lagfæringa á búnaði og húsnæði verksmiðjunnar. Þá er verið er að endurbæta starfsmannaaðstöðu og mikið hefur verið unnið í hreinsun og tiltekt. Nú sér fyrir endann á þessum breytingum og hverfur Ingvi til annarra starfa hjá félaginu.

Forsíða Fréttir Myndir Skipin Símanúmer Netföng Fyrirtækið

3/6 ´13 kl 08:00

Jóna Eðvalds er í heimahöfn.

Ásgrímur Halldórsson er í heimahöfn.

Þórir er í höfn.

Þinganes er í höfn á Sauðárkrók.

Steinunn er í höfn í Reykjvík.

Hvanney er í höfn .

Skinney er í höfn.

Ragnar er á veiðum frá Breiðdalsvík,

Guðmundur Sig er á veiðum frá Breiðdalsvík.

Óskum öllum sjómönnum og fjölskyldum þeirra ánægjulegs sjómannadags.

.

 

VEFMYNDAVÉL