27. apríl 2009

Jóna Eðvalds II SF-208 seld.

Gengið hefur verið frá samningum um sölu á Jónu Eðvalds II. Kaupandi er útgerðarfélagið Havdron í Noregi. Havdron er frá Hjellestad í Noregi og eiga þeir eitt skip fyrir og verður Jóna viðbót við skipastól þeirra. Jóna Eðvalds kom í eigu Skinneyjar-Þinganess árið 2003 en þá var það keypt frá Shetlandseyjum. Skipið var smíðað í Noregi 1997 fyrir Íslendinga og hét þá Pétur Jónsson. Jóna Eðvalds II hefur legið verkefnalaus í Hornafjarðarhöfn síðastliðið ár. Skipinu var gefið nýtt nafn áður en það sigldi til áleiðis til Bergen s.l föstudagskvöld og heitir það nú Krossöy. Skinney-Þinganes óskar nýjum eigendum velfarnaðar með skipið.

Forsíða Fréttir Myndir Skipin Símanúmer Netföng Fyrirtækið

24/5 ´13 kl 08:00

Jóna Eðvalds er í heimahöfn.

Ásgrímur Halldórsson er í heimahöfn.

Þórir landaði í gær 83 körum af humri.

Þinganes er á veiðum um 35 - 40 sm norður af Rifstanga.

Steinunn er á veiðum vestur af Breiðafirði .

Hvanney er á veiðum, landaði í gær 43,5 tn.

Skinney er að landa 41 kari af humri, og þeir drengir fara í helgarfrí.

Ragnar er á veiðum, landaði í gær 6,7 tn.

Guðmundur Sig er á veiðum, og landaði í gær 4,4 tn.

.

 

VEFMYNDAVÉL