29. júní 2009

Heimkoma Þóris SF-77

Nýsmíðin Þórir SF-77 kom til heimahafnar í gær þriðjudaginn 30. júní eftir 49 daga siglingu frá Taiwan og gekk heimsiglingin í alla staði mjög vel. Skipið er 29 m langt og 9,2 m breitt og er smíðað í skipasmíðastöðinni Ching Fu í Taiwan. Þórir er systur skip Skinneyjar SF-20 sem kom til heimahafnar 6. april síðatliðin.Þórir er fjölveiðiskip sem ætlað er til neta, tog og dragnótaveiða, er áætlað að hann fari til humarveiða eftir 2-3 vikur. Tóku skip Skinneyjar-Þinganess á móti Þóri með því að safnast saman fyrir utan Hornafjarðarós og sigldu þau saman síðasta spölinn inn til hafnar. Á bryggjunni var boðið upp á léttar veitingar og fiskrétti úr framleiðslu fyrirtækissins og einnig voru skip fyrirtækissins opin til sýnis fyrir almenning. Sólin lét sjá sig um leið og skipin sigldu inn í höfnina og var hátiðarstemning á bryggjunni. Á milli 500-600 manns komu til að taka þátt í hátíðarhöldunum sem heppnuðust í alla staði mjög vel. Smelltu hér til að skoða myndir og hér til að skoða hópmynd af skipunum.

Forsíða Fréttir Myndir Skipin Símanúmer Netföng Fyrirtækið

24/5 ´13 kl 08:00

Jóna Eðvalds er í heimahöfn.

Ásgrímur Halldórsson er í heimahöfn.

Þórir landaði í gær 83 körum af humri.

Þinganes er á veiðum um 35 - 40 sm norður af Rifstanga.

Steinunn er á veiðum vestur af Breiðafirði .

Hvanney er á veiðum, landaði í gær 43,5 tn.

Skinney er að landa 41 kari af humri, og þeir drengir fara í helgarfrí.

Ragnar er á veiðum, landaði í gær 6,7 tn.

Guðmundur Sig er á veiðum, og landaði í gær 4,4 tn.

.

 

VEFMYNDAVÉL