13. ágúst 2010

Hermann Stefánsson til Iceland Pelagic

Hermann Stefánsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Iceland Pelagic sem er útflutnings- og sölufyrirtæki í eigu Skinneyjar-Þinganess og Ísfélags Vestmannaeyja. Félagið hóf starfsemi árið 2008 og hefur einkum sinnt sölu uppsjávarafurða á Austur-Evrópu. Hermann hefur störf 1. september nk. Um leið lætur hann af störfum sem framleiðslustjóri Skinneyjar-Þinganess, en því starfi hefur hann gegnt síðan 1999. Hermann mun annast sölu afurða Skinneyjar-Þinganess eins og hann hefur gert meðfram starfi sínu sem framleiðslustjóri.

Forsíða Fréttir Myndir Skipin Símanúmer Netföng Fyrirtækið

3/6 ´13 kl 08:00

Jóna Eðvalds er í heimahöfn.

Ásgrímur Halldórsson er í heimahöfn.

Þórir er í höfn.

Þinganes er í höfn á Sauðárkrók.

Steinunn er í höfn í Reykjvík.

Hvanney er í höfn .

Skinney er í höfn.

Ragnar er á veiðum frá Breiðdalsvík,

Guðmundur Sig er á veiðum frá Breiðdalsvík.

Óskum öllum sjómönnum og fjölskyldum þeirra ánægjulegs sjómannadags.

.

 

VEFMYNDAVÉL