6. júní 2011

Áhöfnin á Ásgrími hlýtur viðurkenningu

Á Sjómannadaginn 2011 hlaut áhöfn Ásgríms Halldórssonar SF 250 viðurkenningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg fyrir að hafa sýnt öðrum fremur góða öryggisvitund á námskeiðum Slysavarnaskóla sjómanna. Skipstjórar eru Ásgrímur Ingólfsson og Sigurður Ægir Birgisson en Sævar Rafn Guðmundsson og Guðmundur Snorri Guðmundsson tóku á móti viðurkenningunni fyrir hönd áhafnarinnar frá Herði Má Harðarsyni formanni Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Viðurkenningin sem veitt er árlega er farandbikar sem afhentur er til varðveislu um borð í viðkomandi skipi í eitt ár ásamt veggskildi til eignar. Á myndinni, sem Jón Svavarsson tók, má sjá starfsfólk Slysavarnaskóla sjómanna, fulltrúa áhafnar Ásgríms Halldórssonar SF 250 og Hörð Má Harðarson, formann Slysavarnafélagsins Landsbjargar.

Forsíða Fréttir Myndir Skipin Símanúmer Netföng Fyrirtækið

3/6 ´13 kl 08:00

Jóna Eðvalds er í heimahöfn.

Ásgrímur Halldórsson er í heimahöfn.

Þórir er í höfn.

Þinganes er í höfn á Sauðárkrók.

Steinunn er í höfn í Reykjvík.

Hvanney er í höfn .

Skinney er í höfn.

Ragnar er á veiðum frá Breiðdalsvík,

Guðmundur Sig er á veiðum frá Breiðdalsvík.

Óskum öllum sjómönnum og fjölskyldum þeirra ánægjulegs sjómannadags.

.

 

VEFMYNDAVÉL